Fyrirsögn

Það er villa í fyrirsögninni.

En ég ætla að skella mér á þessa tónleika, ekki spurning. Emilíana og Damien eru flott. Ætli maður verði ekki að sitja í gegnum Magna líka.


mbl.is Damion Rice leikur í Bræðslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðrétting

"Timo hefur komið fram með Depeche Mode og Muse..."

 
Timo Maas hefur aldrei komið fram með Muse, ég veit ekki með Depeche Mode, en leiðir Muse og Maas hafa aldrei legið saman. Plötusnúðurinn hefur þó "remix-að" lög með Muse, og frægust eru lögin á 12" plötunni Muse Newborn - Paul Oakenfold's Perfecto Remix en þó að hún heiti í höfuðið á Oakenfold þá á Maas tvö Sunburn remix á henni. Ég er nokkuð viss um að hann hefur ekki gert fleiri. Þessi tvö remix hafa þó komið á Sunburn og Muscle Museum, US, smáskífunum.

Bara að koma því á hreint.  


mbl.is Timo Maas segir gott að skreppa til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða Örn?

Ég er nú ekki mesti áhugamaður um fótbolta, en eitthvað fylgist ég með.

Torres er eins og Örn." segir Quiero. En þá spyr ég sjálfan mig: "Er Örn frægur fótboltamaður, ef svo er, af hverju veit ég þá ekki hver það er." Ef hann hefði sagt Maradona, Pélé eða Beckham, þá hefði ég alveg skilið hann, en núna þarf ég að google nafnið Örn og fótbolti og athuga niðurstöðurnar.

Ég þarf sýnilega að fylgjast betur með fótbolta svo að ég skilji líkingar í fréttum. 


mbl.is United menn hræðast Torres
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10 þúsund konur sem...

...hafa sofið hjá mönnum í öllum þessum 50 löndum? Gefið mér pásu, þessi könnun er engan veginn marktæk nema það hafi gerst. Kannski eru þýskar konur svona óánægðar með kynlíf, það er ekkert víst að ítalskir karlmenn gætu fullnægt þeim eitthvað betur en þýskir gera.
mbl.is Þjóðverjar verstu elskendurnir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar hefur hann verið?

Getur hann John þarna ekki sagt lögreglunni hvar hann hefur haldið sig seinustu fimm ár. Þarf lögreglan eitthvað að rannsaka það frekar?
mbl.is Týndur í fimm ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó, ég hélt að allar konur væru með hálfan heila

Einhver varð að segja þetta.

 

Ég meina þetta þó ekki :)

 

Á hliðarnótu; hafið þið pælt í því hvað stórt Ó eða O er miklu verr útlítandi heldur en lítið ó eða o? Stórmerkilegt.

 

Uppfærsla: Haha, ég veit ekki hvort að það fólk sem að kommentaði hjá mér (Kona og Björg) hafi lesið eitthvað annað en fyrirsögnina, en ég skrifaði líka "Ég meina þetta þó ekki :)" en það þýðir "Djók" fyrir þá sem ekki fatta.  


mbl.is Kona með hálfan heila lifir eðlilegu lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo mikið rangt

Í fyrsta lagi vann Detroit Miami 91:80. Í öðru lagi þá er f í upphafsleik. Í þriðja lagi hefði mátt bæta því við að Dwyane Wade var ekki með Miami liðinu, ekki nauðsynlegt að minnast á það en það hefði mátt gerast. Í fjórða lagi voru Amare Stoudamire með 23 stig og 11 fráköst og Steve Nash með 18 stig og 12 stoðsendingar fyrir PHOENIX. Í fimmta lagi hefði mátt segja það að Kevin Durant var með 27 stig í aðeins öðrum NBA-leik sínum.

 

Takk fyrir mig 


mbl.is NBA: Prince skoraði 34 stig í sigri Detroit á Miami
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plötunafnið

Leiðréttið mig ef að ég hef rangt fyrir mér; platan heitir In Rainbows ekki satt?

 

Það er eins með þennan Thom Yorke og flesta góða/ágæta söngvara; prímadonnur. 

Ég geri mér samt grein fyrir því að það þarf að hlúa að rödd mannsins, aðalhljóðfærið hans.


mbl.is Radiohead á tónleikaferð á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástæða

Þarna er komin góð ástæða til þess að horfa á Star Trek mynd, Simon Pegg. Ég dýra þennan mann. Ég held að ég hafi aldrei horft á Star Trek mynd, allavega ekki enst alla myndina.

 

Ég hlakka líka til Run Fat Boy, Run en þar leikur hann og David Schwimmer leikstýrir. 


mbl.is Nýr Scotty í Star Trek
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær fyrirsögn

Ég viðurkenni að ég er ekki búinn að lesa fréttina, eitthvað um gróðurhúsalofttegundir, en fyrirsögnin er góð. Guðni bregst ekki, skáldlegur er hann mjög.
mbl.is Átu saltan grautinn og kyngja nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband